Færsluflokkur: Bloggar

Grænlensk börn notuð sem tilraunadýr

Ég varð mjög reiður þegar ég las þessa frétt og trúði ekki mínum augum. Þetta er ekkert annað en mannréttindabrot og brot á öllum mannréttindum yfir höfuð. Þetta minnir mig á Norðmenn sem mismunuðu nork/þýskum börnum eftir síðari heimsstyrjöld, þar sem norsk börn voru látin í einángrunn og farið illa með, af því að þau áttu þýska feður. Ég  tel að Dönsk stjórnvöld eigi að byðjast tafarlaust afsökunar á þessu og bjóða þessu fólki sem eftirlifir skaðabætur,jafnvel sálfræði aðstoð. Þetta Má einnig líkja við Breiðavíkur málið þar sem börn voru tekin af heimilum sínum og sett í hendur ókunnugra, sem vissu ekkert um uppeldi á börnum eða mannlegu eðli. Þetta er ekkert annað en Nazismi í sinni fullkomnu mynd. Segi bara skammist ykkar dönsk stjórnvöld. Tel að grænlensk stjórnvöld eigi að leyta réttar síns í þessu máli.


mbl.is Grænlensk börn sem tilraunadýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband